Alþjóðamál

Í dag þá lenti ég í því sem mér finnst algjör martröð. Ég átti að fylgjast með umræðum um mjög mikilvægt mál í heimspólítíkinni án þess að segja mína skoðun eða bæta almennilega í samræðurnar. Verð ég að viðurkenna að ég er mjög svo vanur því að geta sagt mína skoðun en í þessu tilfelli þá varð ég að halda hljóði því hér á það við að þögnin sé gulls ígildi.
MUN er alltaf skemmtilegt, þar er IceMUN engin undantekning, eini munurinn er að fólk reynir að toga mig á staðina sem ég fer ekki venjulega á,. En það á víst að vera ein af þessum MUN-reynslum, jafnvel í þínu eigin landi að "kynnast" reynslu sem þú ert ekki vanur. Hvort sem það er eitthvað sem þú villt ekki gera eður ei er náttúrlega alltaf upp á þig komið, því það neyðir enginn neitt af þessu upp á þig.
Með kveðju
Kristján
Einn af mínum uppáhaldstilvitnunum er blönduð tilvitnun
Þögnin getur verið gulls ígildi en stundum er hún fyrir

Fituát, kappát ólympíugrein!?

Þetta er eitt af því sem mér finnst sérstakt við Úkraníu, eiga þeir að sögn að vera meðal þeirra þjóða sem vilja hafa kappát sem ólympíugrein.
Eins og ég skilgreini ólympíuleikanna og hver sem er er velkominn að leiðrétta mig, þá eiga ólympíuleikarnir að upphefja heilbrigt líferni, þ.e heilbrigðan líkama og sál. Þá má vel vera að þeir sem séu heimsmeistarar í kappáti séu með mjög heilbrigða sál en ég er nokkuð ef ekki algjörlega öruggur að kappát sé ekki heilbrigt fyrir líkamann.

mbl.is Át heilt kíló af svínafitu á 20 mínútum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnir undir alþjóðaaugum?

Ef múslimar ætlast til þess að þeir geti tekið eitthvað úr samhengi og látið páfa biðjast afsökunnar fyrir það þá getum við gert gert það sama. Spurning um að feminístahreyfingar um gjörvalla veröld fari í mótmæli, til þess eins að sýna þeim hversu annt okkur, vestræna heiminum er um  kvenréttindi. Það þyki ekki í lagi að tala um konur sem "kjötstykki".

mbl.is Ástralskur múslímaklerkur krafinn um afsökunarbeiðni vegna umdeildra ummæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er framundan og hvað er búið

Svo mikið alltaf að gera í háskólanum þessa stundina. Þegar ég er búinn að lesa nokkra kafla í hinum og þessum fræðum, þá meina ég skammtafræði, þéttefnisfræði, safneðlisfræði o.s.frv þá fer ég að reikna dæmi. Síðan þegar ég er búin að því þá forrita ég í fortran og laga síðuna hjá IceMUN.
Síðan á þriðju- og fimmtudögum fer ég í kórinn. Ég hef samt í raun ekkert að kvarta yfir, þetta er allt eitthvað sem mér finnst gaman að gera. Ég get ekki beðið eftir IceMUN á fimmtudaginn. Svo spenntur. Florian Vidal, vinur minn frá Frakklandi kemur á morgun og ég ætla að sýna honum hitt og þetta af okkar yndislega land. Ég var að hugsa um að sýna honum fyrst eitt lítið gil sem er í raun fer eftir sömu línu og Almannagil á Þingvöllum. Á einni hliðinni þá er ég í Evrópu en á hinni er ég í Ameríku. Þótt að sé í raun ekki alveg svona einfalt þá er þetta voðalega táknrænt. Blá Lónið, Geysir, Gullfoss, Perlan, Hallgrímskirkja o.s.frv. Ef þið hafið einhverjar tillögur um hvað ég ætti að sýna honum þá er ykkur velkomið að koma með þær.
Eins og gefst þá er ég jafnstoltur af mínu landi og hann er af sínu. Var að hugsa um hvort ég ætti að fara í eina af þessum sýnisferðum með honum. Hef í raun aldrei farið í svona sýnisferðir. Ekki það, ég hef farið í ótal skólaferðir og ferðir með ættingjum og vinum um allt land. En ég hef aldrei ferðast um landið mitt eins og sé túristi.

Ljóð dagsins

Lífið
Þegar mann vantar þann
Sem segir aldrei eða alltaf
Þegar sálin öskrar meira
En dagurinn heimtar minna
Hvert fer ég nema milliveginn
Þrátt fyrir öskur sálarmegin
Lífið fer áfram hvert sem ég fer
Ég stoppa, ég skoða en lífið gengur
Ég sé, ég athuga, líf þarf engar tengur
Hvert á ég að fara, skoðanir mínar engar
Þegar allir mig toga, ég segi stopp
Því hvert á ég að fara nema þar sem vilji minn gengur
Alltaf jafn hörmuleg kvæðin eftir mig
Með kveðju Kristján H

Jafnræði

Hver er munurinn á feminísta, kvenrembu, karlrembu og jafnræðissinna. Því stundum finnst mér eins og þessir hlutir véfengist fyrir fólki og því þá ekki mér. Að tala sí og æ niðrandi um hitt kynið frekar en þitt er ekki jafnræðissinni. Jafnræðissinni og alvöru feminísti ætti í raun að vera nákvæmlega sami hluturinn.

Fyrir suma þá er jafnræðisbaráttan búin. Einhversstaðar heyrði ég þessa setningu. "Stríðið er búið en baráttan heldur áfram". Ætli það sé ekki svipað hér. T.d í fjölmiðlum, þá er ég að tala um kvikmyndir, blöð o.s.frv. þá virðist sem sumar konur leyfi sér sumar að tala rosalega niðrandi um karlkynið eins og við séum einhvers konar sjúkdómur. Ef karl gerði slíkt hið sama þá er eins og einhver hafi kveikt eld. Jafnræðisreglan merkir að annaðhvort mega allir eða öllum er bannað. Það er enginn millivegur eða undantekningar.


Ísland

Ég hef verið að reyna að vinna að kynningastarfi fyrir IceMUN og mér finnst voðalega leiðinlegt að það skuli vera svona dýrt að koma og að vera á Íslandi. Flugfélögin, hótelin og þegar er búið að borga þetta þá er flest allt annað dýrt líka.
Ég veit bara ekki hvernig sumt fólk hefur yfirleitt efni á að lifa hérna á höfuðborgarsvæðinu. Leiga er alveg viðbjóðslega há og fasteignaverð gerir fólki ekkert auðveldara að kaupa. Fyrir allt landið þá er matvöruverð það hátt að ég veit ekki hvernig sumir öryrkjar hafa efni á yfirleitt að lifa.
Samkeppnin við önnur lönd er rosalega erfið þegar ég get ekki boðið betra en þetta. Veit nú samt ekki hvort hægt sé að eiga við hótelin eða flugfélögin nema þá á heimsskala þar sem það er alveg rosalega dýrt að ferðast. Alls staðar er verið að reyna að arðræna fólk. Ná sem mestum peningum af ferðamönnum. Leiðinlegt...en hvað getur maður gert. Kapítalisminn gengur út á þetta og það, þangað til við finnumm eitthvað annað betra er það sem kerfið okkar gengur út á.

Kór-sagan

Fyrir mörgum árum á öðru ári mínu í FB að mig minnir þá fór ég í FB-kórinn og var þetta lag hérna fyrir neðan fyrsta lagið sem ég söng í kór.

SHENANDOAH
Sea Shanty

Shenandoah, I love your daughter,
A-way, you rolling river!
Shenandoah I long to hear you;
A-way we're bound away
'Cross the wide Missouri

The ship sails free, a gale is blowing
A-way, you rolling river!
The braces taut, the sheets a-flowing
A-way we're bound away
'Cross the wide Missouri

Shenandoah, I'll ne'er forget you
A-way, you rolling river!
Till I die, I'll love you ever,
A-way we're bound away
'Cross the wide Missouri

Um það er deilt hver samdi þetta og eru til mismunandi textar við lagið þó þeir gangi alla svipaða leið


Veikur

Ég er búinn að vera svolítið veikur þessa viku. Hálsbólga, kvef og síþreyta. Þetta hefur ekkert hjálpað mér með það að vera í háskóla. Ég hef í raun engan tíma til að vera að þessu. Ég svaf alveg rosalega mikið þessa viku en náði samt að mæta í kórinn og gera flest fyrir skólann. Ekki það ég reyndi samt að gera allt sem ég geri venjulega. Ég fór einu sinni í bíó í þessari viku en fann greinilega fyrir því að ég er orðinn hálfleiður á bíóum eftir þessar tvær kvikmyndahátíðir sem voru í september og í byrjun október. Ég veit ekki hvað ég sá margar myndir en a.m.k hef ég núna tíma til að gera aðra hluti. Eins og ég segi alltaf þetta jafnast út og ég finn mér eitthvað annað að gera.
Ég ákvað það að straumfræðin þyrfti að bíða næsta hausts, næsta ár er í svona limbó hjá mér. Hugsanlega tek ég einn skyldukúrs þá og myndi þá útskrifast í janúar en gæti tekið sumarpróf. Í raun veit ég ekkert hvað ég á að gera í framtíðinni. Nema það að ég ætla í meistarann og doktorinn og ætla mér ekki að gefast upp. En eins og er þá er lífið yndislegt og mér langar næstum því ekki að útskrifast þar sem ég hef eiginlega bara aldrei skemmt mér svona vel.
Skrýtið, ég hugsa alveg rosalega lítið um fortíðina. Fellaskóli, FB o.s.frv. var allt gott á meðan það var en núna er ég að öðru. Ég heyrði samt alveg hrikalegar fréttir um kórinn í FB sem ég var í. Því miður þá heyrði ég það að búið er að leggja kórinn niður:( . Finnst mér þetta alveg agalegar fréttir því FB á að vera einn stærsti ef ekki sá stærsti, menntaskólinn á Íslandi. Langaði mig næstum að hringja í gömlu kórfélaganna, safnast saman fyrir framan FB og mótmæla. En held að aðallega hafi þetta verið nemendunum í FB að kenna. Enda er svo margt kennt þarna að það er í raun voðallega lítill samtilfinning í skólanum. Man líka eftir þegar ég var í MNN, þekkti ekki meirihlutann af þessu fólki enda var ég í náttúrufræðibraut en það var í félagsbraut, smiðnum, sjúkraliðanum o.s.frv.
Ekki það að þetta sé betra í Háskólanum en kórinn þar er alveg æðislega skemmtilegur, bæði að vera í og til að syngja. Háskólalífið er alveg rosalega sundrungslegt, enda er svo margt kennt þarna og flestir haldast bara saman í sínum hópum. Stiglarnir, nördarnir, pólitíkusarnir, Maníurnar o.s.frv. Enda mættu vera fleiri atburðir eins og októberfest þar sem fólk úr öllum háskólanum kemur saman.
Jæja, hvað með það. Ég er að lesa þéttefnisfræðibókina eftir Kittel sem er skrifuð á sinn undarlega hátt og er ég aldrei viss um að ég sé að læra neitt með því að lesa hana. En samt finnst mér hún ekki jafn hræðileg og henni var lýst fyrir mér. Auk þess neita ég að láta segja mér að þetta sé leiðinlegt. Leiðinlegt/skemmtilegt er spurning um hugarfar og á meðan ég er með góða kennara, skemmtilegt fólk mér við hlið og er ekki stórskaddaður eða veikur þá sé ég enga ástæðu til þess að kvarta.
Lífið er bara svo gott. Að ég sé enga ástæðu til þess að kvarta. Ég á góða vini og ættingja, er næstum aldrei blankur, skemmti mér oft og læri og læri og læri. Ef ég myndi deyja núna þá hefði ég í raun voða fátt yfir að kvarta. Jæja, þá er að fara að læra meira, bandý á morgunn + meiri lærdómur. Ætli ég segi þetta blogg ekki fínt með einu klassískasta kvæði um skólann. Fann ekki textann á netinu og bið ég vinsamlegast einhverna að "commenta" textanum við gamla góða lagið "Í skólanum". Ég bý þá bara til mitt eigið á meðan.
Í skólanum, Í há-há-skólanum
Ég djamma á fullu, alveg á fullu
Lærandi daga og nótt
Mér verður aldrei rótt
Syngjandi með kórnum
Ég ræði mitt æði
Því á morgun ég tek mitt skólaþrek
Þekkingin ég sæði´
Í, Í háskólanum ég djamma
Það var hún amma
og hún mamma
Pabbi minn og afi
Frændur mínir og frænkur
Vinir og ættingjar allir
Minn stuðning ég fæ og gef
Því skólinn er mitt æði
Þekkingin ég sæði
Ljóðið mitt ég ræði
Háskólinn eftir mig

Til gamans og gleði

Vegna þrýstings frá háskólafólki, þá skal ég semja ljóð

Dagur minn 

Dagur minn gengur
Lærdómur er minn fengur
En svefninn minn gengur
Sem hjálpar mér ,eðlisstrengur
að viska okkar, minn fengur

Minn dag ég teikna
Minn  dag ég reikna
Söngur á daginn er tímaóð
Stress og hress og skemmtilegt

Kvöldið mitt

Kvöldið er mín ró
Þar sem hún ló
Kvöldið er minn söngur
Kvöldið er mín löngur

Þetta var alveg hræðilegt en læt þó við liggja...

Ætli ég segji ekki gott með því að setja Öbbu hérna niður sem ljóð/söng dagsins

 

Abba Labba Lá

Hún hét Abba-labba-lá.
Hún var svört og brún á brá
og átti kofa í skóginum
á milli grænna greina
og trúði á stokka og steina.

En enginn vissi, hvaðan
hún kom í þennan skóg;
enginn vissi, hvers vegna
hún ærslaðist og hló,
og enginn vissi, hvers vegna
hún bæði beit og sló.-

Hún hét Abba-labba-lá.
Hún var svört og brún á brá
og gerði alla vitlausa,
sem vildu í hana ná.
Á villidýrablóði,
á villidýrablóði,
lifði Abba-labba-lá.

...Einu sinni sá ég
Abba-labba-lá.
Hún dansaði í skóginum,
svört og brún á brá.
Mér hlýnaði um hjartað
og hrópaði hana á:
Abba-labba,
Abba-labba,
Abba-labba-lá!

Þá kom hún til mín hlaupandi
og kyssti mig og hló,
beit mig og saug úr mér
blóðið, -svo ég dó.

-Og afturgenginn hrópa ég
út yfir land og sjá:
Varið ykkur, veslingar,
varið ykkur, veslingar,
á Abba-labba-lá.



Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
1895-1964

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Checking the world out, my way

Höfundur

Kristján Haukur Magnússon
Kristján Haukur Magnússon
Eðistræðinemandi við Háskóla Íslands. Tenór við kór sama skóla. Virkur og í stjórn MUN(Model United Nations) Eng:Physics student at the University of Iceland. Tenor at the university chorus. Active in the Model United Nations sociaty.
Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • Handel
  • Sendiráð Kóreu
  • Listarborgin Osló
  • Ein á flakki
  • Ég í Helsinki

Spurt er

Hvenær ætlar kjaradómur að hækka laun ríkisstarfsmanna?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband