Æfingarbúðir í kórnum

Blindfullur náunginn
Þá eru þessar kóræfingarbúðir í Hlíðardalsskóla 2006 búnar. Djammið fyrir mitt leyti var æði. Skemmtiatriðin voru sæmileg þetta árið en hafa oft verið betri. Þeir sem drukku mest þetta skiptið...annaðhvort ég eða Jónas, þannig a.m.k þá á tenórinn þann titill. Gerði maður greinilega eitthvað öðruvísi en maður gerir ófullur a.m.k ef marka má allar myndirnar. En samt sé ég ekki eftir neinu. Ég braut ekki neitt og gerði ekkert af mér a.m.k svo að ég viti. A.m.k lít ég þannig á það sjálfur.
Vinur minn Einar Steinn er alltaf að kveða ljóð, ég er nú reyndar raunvísindanemandi en ekki málvísindanemandi og er ekkert allt of hrifinn að vera hreyta úr mér ljóðum. Enda hef ég ekki verið í Íslenskunámskeiði síðan ég var 17-18 ára. Vá, það eru u.þ.b 6,5-8 ár síðan. Where is my cane, I feel old. Verð kvarthundrað ára gamall 12 nóvember. Uss, best að vara sig að safna fyrir elliárin svo ég lendi ekki í einum af þessu geymsluplássum fyrir gamalt fólk. Við köllum þetta víst "elliheimilli". Ég man varla hvernig á að beita stuðlum&höfuðstöfum, endurtekningum og rími en hérna kemur þetta. Hér er þó eitt af mínum uppáhaldsljóðum. Ég skal kveða eitt stutt eftir þetta svo að ég sé ekki að svindla. En hér koma ljóðin.
Ljóð dagsins:

Dagur er risinn

rjóður í austri,

raular mér kvæði

þröstur á grein.

Blessuðu tónar,

blessaði dagur,

blessaða veröld

tindrandi hrein.

Sólin er risin

hátt upp á himin,

hlæjandi dagur

þerrar mín tár.

Blessað sé ljósið,

lífgjafinn mildi,

lofaður veri

himinninn blár.

Ég elska lífið,

ljósið og daginn,

lofgjörð um heiminn

fagnandi syng.

Blessað sé lífið,

blessað sé ljósið,

blessaðir morgnar

árið um kring

(Gelískt lag / Heimir Pálsson)

Ísland án stuðla
Í er fyrir ís, kaldan sem pólinn
S er fyrir skáldið, rjúkandi um jólin
L er fyrir landið, fagurt og gott
A er fyrir arfinn, íslenskan flott
N er fyrir nýsköpun, vísindi þín
D er fyrir dótið, eyðslusemi mín
Efa ekki að margir hafi búið svipað til en þetta er mín útgáfa
með kveðju
-Kristján Haukur Magnússon

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Checking the world out, my way

Höfundur

Kristján Haukur Magnússon
Kristján Haukur Magnússon
Eðistræðinemandi við Háskóla Íslands. Tenór við kór sama skóla. Virkur og í stjórn MUN(Model United Nations) Eng:Physics student at the University of Iceland. Tenor at the university chorus. Active in the Model United Nations sociaty.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Handel
  • Sendiráð Kóreu
  • Listarborgin Osló
  • Ein á flakki
  • Ég í Helsinki

Spurt er

Hvenær ætlar kjaradómur að hækka laun ríkisstarfsmanna?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband