Prófvertíð, Mundi frændi og sumarið

Prófvertíð er í gangi, ritgerðum, verkefnamöppum o.fl. á að skila í þessari viku. Fyrsta prófið mitt er á laugardaginn og allt fínt með það.

Í dag þá var ég orðinn hálfáhyggjufullur þegar pabbi var ekki kominn heim úr vinnunni kl 20:10, þannig að ég hringdi í hann. Sagðist hann þá vera á spítala og að Mundi frændi minn, bróðir pabba hefði hnigið niður í vinnunni, kvartað yfir svima, pabbi bauðst til að aka honum heim. Þegar í bíllinn var komið þá hætti frændi minn að anda. Pabbi tók frænda minn úr bílnum, gaf honum neyðaraðstoð og hringdi í 112. Núna liggur hann á gjörgæslu eftir hjartaþræðingu, þ.e hann var með kransæðarstíflu. Skv. því sem ég heyri þá eru líkur hans 50/50. Vona ég innilega að hann komist úr þessu nánast óskaddaður. Þ.e ekki liðið ár síðan að Alla ömmusystir dó og ekki 1,5 ár síðan Hrefna amma dó. Ég get ekki annað en vonað að föðurfjölskylda mín þurfi ekki að missa enn einn á svona stuttum tíma.

Hvað ég ætla að gera í sumar: Vinna, ferðast, lesa bækur, slaka á og njóta lífsins. Hvað annað á ungt Íslenskt fólk að gera?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hey, gleðilegt sumar! Hvað ætlum við að gera? Ég vonast að gera bara ekki neitt en lifið er öðruvísi því miður. Mamma ætlar að heimsækja mig ef ég er í Rvk og ég verð að játa að ég hlakkar till þess :) Vinna, læra til þrófs (svolítið :)), og njóta sumarsins að sjálfsögðu!

Alena (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og tíu?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Checking the world out, my way

Höfundur

Kristján Haukur Magnússon
Kristján Haukur Magnússon
Eðistræðinemandi við Háskóla Íslands. Tenór við kór sama skóla. Virkur og í stjórn MUN(Model United Nations) Eng:Physics student at the University of Iceland. Tenor at the university chorus. Active in the Model United Nations sociaty.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Handel
  • Sendiráð Kóreu
  • Listarborgin Osló
  • Ein á flakki
  • Ég í Helsinki

Spurt er

Hvenær ætlar kjaradómur að hækka laun ríkisstarfsmanna?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 2177

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband